„Slippurinn Akureyri, Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum og Skipasýn gera með sér hönnunarsamning“

Slippurinn Akureyri og Vinnslustöðin handsala hönnunarsamning á sjávarútvegssýningunni í Barcelona, …
Slippurinn Akureyri og Vinnslustöðin handsala hönnunarsamning á sjávarútvegssýningunni í Barcelona, f.v. Ásþór Sigurgeirsson, Sverrir Haraldsson, Magnús Blöndal og Sindri Viðarsson. Myndir aðsendar

 Slippurinn Akureyri sem framleiðir vinnslubúnað undir merkjum DNG by Slippurinn hefur gert hönnunarsamning við Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum og verkfræðistofuna Skipasýn.

Samningurinn felst í því að Skipasýn, sem fer með hönnun 29 metra togskips fyrir Vinnslustöðina, hannar lest skipsins á þann hátt að hægt sé að koma fyrir 250-280 kera sjálfvirku flutningskerfi frá DNG by Slippurinn. Þar að auki er hannaður vinnslubúnaður með bestu mögulegu hráefnismeðferð að leiðarljósi.

„Samstarfið við Vinnslustöðina í Vestmanneyjum og Skipasýn hefur verið mjög gott og það er sérstaklega ánægjulegt fyrir okkur að koma að verkefninu svona á fyrstu stigum hönnunar. Samningurinn er rökrétt framhald af þeirri forvinnu sem hefur átt sér stað í verkefninu undanfarin misseri“ segir Magnús Blöndal sviðsstjóri Slippsins Akureyri.

Sjálfvirkt lestarkerfi fyrir ferskfiskskip frá DNG by Slippurinn

Athugasemdir

Nýjast