26. mars, 2007 - 14:16
Fréttir
Skrifað var undir uppbyggingarsamning milli Akureyrarbæjar og Golfklúbbs Akureyrar nú í hádeginu. Samningurinn tekur til nauðsynlegra breytinga á golfvelli GA vegna lagningar Miðhúsabrautar, almennrar endurnýjunar á golfvellinum sjálfum, uppbyggingu nýs æfingasvæðis og 9 holu golfvallar. Framlag bæjarins á árunum 2008-2012 nemur 229 milljónum króna. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri og Halldór Rafnsson formaður GA skrifuðu undir samninginn. Bæði lýstu þau yfir ánægju með samninginn. Sigrún Björk sagði að GA hefði skilað góðu starfi og að með þessum samningi væri verið að fjárfesta í lífsgæðum og ferðaþjónustu. Halldór sagði að sagan myndi dæma um hvort þetta væri stærsta skref í sögu klúbbsins en það væri alla vega mjög stórt. Hann sagði að búið hefði verið að loka á klúbbinn varðandi stóru mótin sem fram fara hér á landi. Nú þyrfti að fara að vinna, enda væri mikil vinna framundan, við að koma vellinum í fremstu röð ný. Samningurinn tekur einnig til þeirra mögulegu samlegðaráhrifa sem myndast við framkvæmdir beggja aðila og er þá einkum horft til framkvæmda við Miðhúsabraut, Naustahverfi og golfvöllinn sjálfan. Það er skilningur aðila að í framkvæmdir þessar sé ráðist til eflingar golfíþróttinni í bænum og að sem flestum gefist kostur á þátttöku án óhóflegrar gjaldtöku. Framkvæmdaáætlun samningsins miðar sérstaklega að því að aðalvöllur GA verði endurgerður fyrir sumarið 2010 en þá fer Íslandsmótið í höggleik fram á vellinum. Sameiginlegt markmið samningsaðila er að völlurinn verði þá kominn í raðir allra bestu golfvalla landsins sem og að vera vel tækjum búinn.
Árin 2011 og 2012 verður svo ráðist í uppbyggingu á glæsilegu æfingasvæði sem mun bæta aðstöðu kylfinga til muna sem og að byggja upp 9 holu æfingavöll. Þessar aðgerðir munu gera GA kleift að taka við fleiri nýliðum bæði til kennslu og inn á völl sem hentar betur þeim sem styttra eru komnir í íþróttinni. Framlag GA á samingstímanum er 25 milljónir króna, 12 milljónir króna 2010 og 13 milljónir króna árið 2012.