Skráning í sumarbúðirnar á Hólavatni í fullum gangi

Skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK að Hólavatni er nú í fullum gangi en í sumar verður boðið uppá 7 dvalarflokka fyrir börn á aldrinum 7-14 ára. Skráning hófst 20. mars og nú þegar er búið að skrá á annað hundrað börn. Enn er hægt er að bæta við börnum til viðbótar í þá flokka sem í boði eru.  

Ein þeirra nýjunga sem í boði eru fyrir sumarið er þriggja daga Frumkvöðlaflokkur fyrir 7-8 ára stelpur en lokadagur flokksins er laugardaginn 12. júní og þá er foreldrum boðið að koma og taka þátt í dagskránni með börnunum. Auk þess er vert að benda sérstaklega á Ævintýraflokk fyrir 12-14 ára þar sem strákar og stelpur eru saman í flokk en í öðrum flokkum er skipt upp eftir kyni.

Öllu starfsfólki Hólavatns er tryggður fjölbreyttur undirbúningur. Lögð er áhersla á fræðslu um þroska barna og unglinga, á hagnýt mál eins og skyndihjálp og brunavarnir, heilsuvernd og hreinlæti. Þá sækja allir starfsmenn námskeiðið „Verndum þau" sem byggir á samnefndri bók og fjallar um barnaverndarmál. Allar frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagsins www.kfum.is og skráning fer fram alla virka daga í síma 588-8899 og á www.kfum.is.

Nýjast