Sköpun bernskunnar á Listasafninu

Verk eftir Helga Þorgils Friðjónsson. Fengið af vef Listasafnsins á Akureyri.
Verk eftir Helga Þorgils Friðjónsson. Fengið af vef Listasafnsins á Akureyri.

Á laugardag nk. verður sýningin Sköpun bernskunnar 2022 opnuð í Listasafninu á Akureyri. Þetta er níunda sýningin undir þessari yfirskrift, en hún er sett upp sem hluti af safnfræðslu og með það markmið að gera sýnilegt og örva skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru skólabörn og starfandi myndlistarmenn. Þátttakendurnir vinna verk sem falla að þema sýningarinnar sem að þessu sinni er Fuglar og önnur dýr. Opið verður frá klukkan 12-17 en það er Guðrún Pálína Guðmundsdóttir sem annast sýningarstjórn.

Myndlistarmennirnir sem boðin var þátttaka í ár eru Aðalheiður S. Eysteinsdóttir og Helgi Þorgils Friðjónsson. Þau eru bæði landsþekkt fyrir list sína, skúlptúra og málverk, af fólki og dýrum. Skólarnir sem taka þátt að þessu sinni eru leikskólinn Lundarsel og grunnskólarnir Hlíðarskóli, Oddeyrarskóli og Hríseyjarskóli, sem og Minjasafnið á Akureyri / Leikfangahúsið.

Leikskólabörnin vinna sín verk á Listasafninu undir handleiðslu Aðalheiðar og Guðrúnar Pálínu Guðmundsdóttur, fræðslufulltrúa og sýningarstjóra. Myndmenntakennarar grunnskólanna sem taka þátt stýra þeirri vinnu sem unnin er sérstaklega fyrir sýninguna í samstarfi við nemendur.

Sköpun bernskunnar hlaut öndvegisstyrk Safnaráðs 2020 til þriggja ára.


Athugasemdir

Nýjast