Akureyrarbær býður grunn- og framhaldsskólanemum frítt í sund og á skíði í vetrarfríi grunnskóla á Akureyri. Fimmtudaginn 7. mars og föstudaginn 8. mars geta grunn- og framhaldsskólanemar farið í skíðalyfturnar í Hlíðarfjalli og í sundlaugar Akureyrar án endurgjalds.
Einnig verður 50% afsláttur fyrir fullorðna af stökum ferðum í sund og á eins til tveggja daga lyftumiðum þessa tvo daga. Grunnskólanemendur gefa upp kennitölu og nafn skóla í afgreiðslu og framhaldsskólanemar VMA og MA framvísa nemendaskírteinum, segir á vef Akureyrarbæjar