11. mars, 2011 - 13:49
Fréttir
Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli eða á Dalvík og Siglufirði geta skíðað á hverju
þessara svæða sem er um helgina þegar fyrsta skiptihelgi vetrarins verður að veruleika. Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í
afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar helgarpassa. Þetta er fyrst skiptihelgin af þremur sem ákveðið hefur verið að hafa
á skíðasvæðunum þremur.