Skip Samherja með góðan afla

Það styttist í sjómannadag og hafa skip Samherja verið að tínast til hafnar með góðan afla. Snæfell EA kom til hafnar á Akureyri í gærkvöld með um 200 tonn og var uppistaðan grálúða. Aflaverðmætið er um 130 milljónir króna. Í morgun kom Björgvin EA til hafnar með um 250 tonna afla.  Uppistaðan er ufsi og grálúða og aflaverðmætið um 134  milljónir króna.  

Oddeyrin EA 210 er á landleið með um 200 tonn af grálúðu og er aflaverðmætið um 130 milljónir króna. Skipið mun landa i Hafnarfirði. Þetta kemur fram á heimasíðu Þorgeirs Baldurssonar.

http://thorgeirbald.123.is/

Nýjast