01. desember, 2007 - 11:56
Fréttir
Flutningaskipið Axel var tekið upp í flotkvína við Slippinn Akureyri nú í morgun. Þessa stundina er verið að skoða botn skipsins sem skemmdist mikið er það strandaði utan við Hornafjarðarós á þriðjudagsmorgun. Samkvæmt því sem Vikudagur kemst næst eru skemmdir á botni skipsins miklar á um 20 metra kafla. Axel losnaði fljótlega af strandstað á þriðjudag, leki kom að skipinu en þó tókst að sigla því til Akureyrar.