Sjómannafélag Eyjafjarðar og Niceair hafa skrifað undir samstarfssamning sín á milli sem veitir félagsmönnum Sjómannafélagsins afsláttarkjör við kaup á inneignarbréfum hjá flugfélaginu.
Hvert fluginneignarbréf frá Niceair er að andvirði 32.000,- kr., en félagsmenn greiða 22.000,- kr. fyrir inneignina. Hver félagsmaður getur keypt allt að sex inneignarbréf á hverju almanaksári.
Hægt er að nota inneignarbréfið frá Niceair til kaupa á flugfargjaldi og annarri bókunarþjónustu hjá Niceair í gegnum bókunarsíðu flugfélagsins.