Sjálfvirk veðurathugunarstöð sett upp á skíðasvæði Húsvíkinga

Mynd/KPÞ
Mynd/KPÞ

Um þessar mundir eru skíðasvæði landsins komin á fullt og má það sama segja um svæðið uppá Reykjaheiði. 

Göngubrautir eru lagðar flest alla daga og lyftan er búin að vera opin undanfarna daga.

Skíðasvæðið stendur í um 370 m. yfir sjávarmáli og því geta veðuraðstæður verið ólíkar því sem er í bænum.

Til að bæta upplýsingamiðlun og þjónustu við gesti svæðisins hefur verið sett upp sjálfvirk veðurathugunarstöð. Stöðin mælir helstu veðurupplýsingar í rauntíma og er skíðafólk hvatt til að kíkja á stöðina áður en lagt er af stað á skíðasvæðið. 

Upplýsingar úr veðurathugunarstöðinni sem og aðrar upplýsingar  má finna á vefsvæði skíðasvæðisins hér
Reglulegar færslur um aðstæður og veður fá síðan finna á Facebook síðu Skíðasvæðisins
Að auki er hægt að fylgjast með skíðaspori í rauntíma á www.skisporet.no


Athugasemdir

Nýjast