Sjálfstæðismenn á Akureyri með prófkjör fyrir kosningarnar í vor

Á fundi hjá Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri sem haldinn var í gærkvöld, var samþykkt með miklum meirihluta að halda prófkjör við val á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningar vorið 2010. Prófkjörið verður haldið í upphafi árs 2010. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag verða veittar síðar.  

Á fundinum kom fram að bæjarfulltrúarnir Sigrún Björk Jakobsdóttir og Elín Margrét Hallgrímsdóttir munu gefa kost á sér til endurkjörs, en bæjarfulltrúarnir Kristján Þór Júlíusson og Hjalti Jón Sveinsson munu ekki gefa kost á sér. Þá hefur Jóhannes G. Bjarnason, eini bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram, eins og komið hefur fram. Framsóknarmenn ætla einnig að viðhafa prófkjör við val á sex efstu mönnum listans fyrir kosningarnar næsta vor.

Nýjast