SÍMEY fagnar 20 ára afmæli

Valgeir B. Magnússon.
Valgeir B. Magnússon.

Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar (SÍMEY) fagnar tuttugu ára afmæli á þessu ári. Mikið vatn hefur til sjávar runnið á þessum tíma og miðstöðin hefur tekið breytingum í takti við breyttar áherslur og þjóðfélagsbreytingar, segir á vef Símenntunar.

SÍMEY er stofnuð af samfélaginu í Eyjafirði og í gegnum miðstöðina fara 3-5 þúsund manns á ári að sögn Valgeis B. Magnússonar framkvæmdastjóra SÍMEY. Hann segir miðstöðina hafa víða skírskotun og starfsemi hennar sé fjölbreyttari en margir kunni að halda. „Breitt framboð námskeiða og lengri námsleiða segir sitt um fjölbreytnina og undirstrikar mikilvægi miðstöðvarinnar fyrir Eyjafjarðarsvæðið. Til SÍMEY sækja þeir sem ekki hafi lokið formlegri framhaldsmenntun og einnig þeir sem hafi lokið framhaldsmenntun en vilji auka þekkingu sína,“ segir Valgeir.

Þetta eigi bæði við um þau námskeið og námsleiðir sem SÍMEY bjóði upp á en einnig eigi þetta við um náms- og starfsráðgjöf sem öllum sé opið að sækja til SÍMEY. Fólk sæki náms- og starfsráðgjöf m.a. til þess að leita leiða til þess að þróa sig áfram í menntun og starfi. Á tímum hraðra þjóðfélagsbreytinga og þegar fjórða iðnbyltingin hafi á ýmsan hátt sett mark sitt á atvinnulífið segir Valgeir aldrei mikilvægra en einmitt núna að þróast í starfi og sækja sér þá þekkingu sem atvinnulíf dagsins í dag kalli eftir.

Verkefni af ýmsum toga

Hjá SÍMEY eru tólf starfsmenn en auk þeirra starfa hjá miðstöðinni um 150 verktakar, þar á meðal fjöldi kennara. Verkefnin eru af ýmsum toga og á SÍMEY í nánu samstarfi við stofnanir og fyrirtæki um námskeið og námsleiðir. Hæfnigreiningar á vinnumarkaði eru vaxandi þáttur í starfseminni og einnig hefur raunfærnimat verið ríkur þáttur hjá SÍMEY í ýmsum atvinnugreinum. Valgeir segir erfitt að meta hvað framtíðin beri í skauti sér en ljóst sé að SÍMEY hafi ríku hlutverki að gegna í hröðum samfélagsbreytingum og mörg ónýtt tækifæri séu í fullorðinsfræðslunni.

Fjarnám muni aukast

Valgeir segir að dag- og kvöldnám verði eftir sem áður ríkur þáttur í starfseminni en ætla megi að hlutur fjarnáms eigi eftir að aukast mikið í framtíðinni. En það beri að undirstrika að allir geti leitað til SÍMEY, hvort sem fólk hafi lokið skilgreindri framhaldsmenntun eða ekki.


Athugasemdir

Nýjast