Silvía Rán gengin til liðs við Göteborg HC

Silvía Rán Björgvinsdóttir. Mynd/Facebook
Silvía Rán Björgvinsdóttir. Mynd/Facebook

SA-ingurinn Silvía Rán Björgvinsdóttir hefur gengið til liðs við Göteborg HC og mun leika með liðinu í SDHL deildinni í íshokkí í vetur.

Silvía hefur skorað 46 stig í 25 leikjum fyrir íslenska landsliðið sem gefur 3,56 stig að meðaltali í leik. Í tilkynningu frá Gautaborg HC (GHC) segir að miklar vonir séu bundnar við Silvíu sem æfir stíft heima á Íslandi og að hún muni kom til með að koma markvörðum deildarinnar á óvart.

Í viðtali á vef félagsins segist Silvía vera í skýjunum með að hafa skrifað undir hjá félaginu. „Það er frábær tilfinning að hafa skrifað undir hjá klúbbi eins og GHC og ýta mér þannig upp á næsta stall. Ég er upp með mér að hafa fengið þetta tækifæri,“ segir hún.

Silvía segir jafnframt að markmiðið á hennar fyrsta tímabili sé að þróa hæfileika sína og og hugarfar. „Ég vil vera besta útgáfan af sjálfri mér og hjálpa liðinu að ná góðum árangri og vinna eins marga leiki og mögulegt er.“

 


Athugasemdir

Nýjast