Sigur hjá Draupnisstúlkum

Draupnir vann sinn fyrsta leik í 1. deild kvenna í knattspyrnu er liðið fékk Tindastól/Neista í heimsókn sl. fimmtudag. Lokatölur í Boganum urðu 4-3 sigur Draupnis. Guðrún Soffía Viðarsdóttir skoraði tvívegis í leiknum fyrir heimastúlkur og þær Gerður Rún Ólafsdóttir og Katrín Vilhjálmsdóttir gerðu sitt markið hvor. 

Eftir þrjár umferðir hafa Draupnisstúlkur þrjú stig í fjórða sæti deildarinnar.

Nýjast