Sigrún Björk víkur sem oddviti og tekur ekki sæti í bæjarstjórn

"Í ljósi mikils fylgistaps Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum hef ég ákveðið að víkja sem oddviti flokksins hér í bæ. Ég mun því ekki taka sæti í bæjarstjórn á nýju kjörtímabili," segir Sigrún Björk Jakobsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í yfirlýsingu sem hún hefur sent frá sér.    

"Niðurstaða kjósenda er skýr. L-listinn vann frábæran og sögulegan kosningasigur. Ég óska þeim innilega til hamingju með sigurinn og bæjarfulltrúum listans velfarnaðar í sínum störfum. Ég kveð bæjarstjórn Akureyrar sátt og er stolt af því sem hefur áunnist á þeim átta árum sem ég hef setið í bæjarstjórn. Nú finnst mér rétt að nýr aðili taki við keflinu. Ólafur Jónsson mun taka sæti mitt í bæjarstjórn. Þar er góður maður á ferð, sem og aðrir frambjóðendur á lista flokksins. Ég vil þakka samherjum mínum í Sjálfstæðisflokknum gott samstarf og stuðning á liðnum árum. Eins vil ég þakka starfsmönnum Akureyrarbæjar og fyrirtækja bæjarins ánægjulegt samstarf. Ég hvet nýja bæjarstjórn til góðra verka, íbúum Akureyrarbæjar til heilla," segir Sigrún Björk ennfremur í yfirlýsingu sinni.

Nýjast