Sigfús Ólafur endurkjörinn formaður Þórs

Sigfús Ólafur Helgason var endurkjörinn formaður Íþróttafélagsins Þórs á fjölmennum aðalfundi í gærkvöld. Hann gegnir jafnframt starfi framkvæmdastjóra félagsins. Árni Óðinsson varaformaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Valdimar Pálsson kjörinn í stjórn í hans stað. Fyrir fundinum lá tillaga þess efnis að framkvæmdastjóri félagsins mætti ekki vera einn af aðalstjórnarmönnum Þórs en sú tillaga var felld með miklum mun.  

Á fundinum var samþykkt að Pílukastfélag Akureyrar fengi inngöngu í Þór og yrði ein af deildum félagsins. Áður hafði stjórn Þórs kannað hjá bæjaryfirvöldum hvort sú deild fengi aðstöðu í norðurenda miðhæðar í áhorfendastúkunni og var það leyfi fúslega veitt. Sigfús Ólafur flutti skýrslu stjórnar og kom hann víða við í máli sínu. Hann sagði stærstu og ánægjulegustu tíðindi síðasta starfsárs væru þau að allar deildar félagsins hefðu verið reknar réttu megin við núllið og að það væri afar ánægjulegur viðsnúninur frá fyrra ári. Sigfús kom einnig inná þær framkvæmdir sem hafa átt sér stað á Þórssvæðinu og þá miklu vinnu sem gríðarlega margt fólk kom að í sjálfboðavinnu. Hann sagði að í dag byggi félagið við það að hafa eitt af bestu íþróttasvæðum landsins til afnota og færði bæjaryfirvöldum þakkir fyrir allt það sem búið er að gera.

Sigfús Ólafur og Nói Björnsson fluttu í sameiningu skýrslu gjaldkera og lögðu fram rekstaráætlun næsta starfsárs. Rekstur síðasta árs gekk í heildina afar vel og þegar upp var staðið skilaði heildarsamstæðan rúmlega 746 þúsund króna hagnaði. Þar með tryggði félagið sér fjögurra milljóna króna ábata frá Akureyrarbæ. Heildarvelta samstæðunnar var um 130 milljónir króna á árinu 2009. Ein lagabreyting var samþykkt á fundinum sem stjórn Þórs flutti. Þar er kveðið á um að stjórn Þórs sé skilt að láta ársreikning liggja frammi á skrifstofu félagsins í 7 daga fyrir aðalfund, þannig að félagsmenn geti kynnt sér hann vel.

Aðalstjórn næsta starfsárs skipa; Sigfús Ólafur Helgason formaður, Nói Björnsson Valdimar Pálsson og Páll Jóhannesson. Auk þeirra eru í aðalstjórn formenn deilda; Unnsteinn Jónsson knattspyrnudeild, Kári Þorleifsson körfuknattleiksdeild, Hörður Sigurharðarson og Ófeigur Arnar Marinósson. Varamenn í stjórn eru: Halldór Áskelsson og Vigdís Lovísa Rafnsdóttir.

Undir liðnum önnur mál ræddi Sigfús m.a. um að nú væru menn farnir að huga að því hvernig fagna eigi 95 ára afmæli Þórs sem er eftir mánuð. Ekki verður blásið til neinnar stórveislu en undirbúningur er hafinn og stefnt að því að halda uppá daginn með opnu húsi í Hamri. Einnig kynnti Sigfús lítið forvarnarverkefni sem unnið hefur verið að á undanförnum misserum. Þar hafi ungt og efnilegt íþróttafólk verið fengið til þess að finna slagorð þar sem hvatt er til heilbrigðs lífernis. Síðan hafa verið teknar myndir af þessu íþróttafólki og slagorðin sett inná myndirnar. Með þessu vill félagið leggja sitt af mörkum í forvörnum hvers konar. Árni Óðinsson, sem setið hefur sem varaformaður Þórs síðan 2006, sagði að hann hætti í stjórn félagsins í góðu og væri alls ekki hættur að starfa fyrir Þór. Hann situr áfram nefnd sem hann var kjörinn í ásamt Gísla Kristni Lórenzsyni, sem hefði það hlutverk að gæta hagsmuna Þórs varðandi uppbyggingu þá sem unnið hefur verið að. Þar myndi hann starfa þar til að þau mál sem enn standa út af borðinu eru komin í höfn. Þakkaði Árni svo fyrrum meðstjórnendum sínum fyrir samstarfið og óskaði nýrri stjórn velfarnaðar. Þetta kemur fram á vef Þórs.

Nýjast