Það er jazzkvartettinn Óli Stolz og co; Ásgeir Ásgeirsson, gítar, Ómar Guðjónsson, gítar, Ólafur Stolzenwald, bassi og Scott McLemore, slagverk sem þá leika. Kvartettinn leitar í smiðju Kenny Burrell og fleiri góðra manna, einnig frá gítarleikurum bandsins. Kenny Burrel lék gítar-jazzblúsinn eins og hann gerist bestur og lék mikið með Jimmy Smith og lék inn á margar plötur í eigin nafni. Tónleikarnir verða einnig á Jazzhátið Reykjavíkur.