Síðuskóli er meðal tólf skóla í úrslitum í Skólahreysti sem fara fram í dag miðvikudaginn 20. apríl í Laugardalshöll. Landsbankinn er bakhjarl Skólahreysti og frítt er inn á keppnina í Laugardalshöll í boði bankans.
RÚV sýnir beint frá keppninni og hefst útsending kl. 20.00 í kvöld.
Auk Síðuskóla keppa keppa eftirtaldir skólar til úrslita:
Árskóli á Sauðarkróki, Egilsstaðaskóli, Grundaskóli á Akranesi, Grunnskólinn á Ísafirði, Hagaskóli, Kelduskóli og Laugalækjarskóli frá Reykjavík, Holtaskóli í Reykjanesbæ, Hvolsskóli á Hvolsvelli, Lindaskóli úr Kópavogi og Stóru-Vogaskóli úr Vogum.
Fyrir Síðuskóla keppa þau Embla Dögg Sævarsdóttir og Raguel Pino Alexandersson í hraðaþraut, Ágústa Dröfn Pétursdóttir tekur armbeygjur og hreystigreip og Elmar Blær Hlynsson tekur upphífingar og dýfur.
Keppnisgreinarnar í Skólahreysti eru armbeygjur, dýfur, hreystigreip, upphífingar og hraðaþraut. Stúlkurnar keppa í armbeygjum og hreystigreip en drengir í upphífingum og dýfum. Tveggja manna lið keppa í hraðaþraut.
Landsbankinn er bakhjarl Skólahreysti og frítt er inn á keppnina í Laugardalshöll í boði bankans.
Landsbankinn veitir nemendafélögum þriggja efstu skólanna vegleg peningaverðlaun.
Keppendur í þremur efstu sætum fá einnig sérstök verðlaun.