Síðuskóli keppir í úrslitum Skólahreysti

Lið Síðuskóla Akureyri
Lið Síðuskóla Akureyri

Síðuskóli er meðal tólf skóla í úrslitum í Skólahreysti sem fara fram í dag miðvikudaginn 20. apríl í Laugardalshöll.  Landsbankinn er bakhjarl Skólahreysti og frítt er inn á keppnina í Laugardalshöll í boði bankans.  

RÚV sýnir beint frá keppninni og hefst útsending kl. 20.00 í kvöld.

Auk Síðuskóla keppa keppa eftirtaldir skólar til úrslita:

Árskóli á Sauðarkróki, Egilsstaðaskóli, Grundaskóli á Akranesi, Grunnskólinn á Ísafirði, Hagaskóli, Kelduskóli og Laugalækjarskóli frá Reykjavík, Holtaskóli í Reykjanesbæ, Hvolsskóli á Hvolsvelli, Lindaskóli úr Kópavogi og Stóru-Vogaskóli úr Vogum.

Fyrir Síðuskóla keppa þau Embla Dögg Sævarsdóttir og Raguel Pino Alexandersson í hraðaþraut, Ágústa Dröfn Pétursdóttir tekur armbeygjur og hreystigreip og Elmar Blær Hlynsson tekur upphífingar og dýfur.

Keppnisgreinarnar í Skólahreysti eru arm­beygj­ur, dýf­ur, hreystigreip, upphíf­ing­ar og hraðaþraut. Stúlkurnar keppa í armbeygjum og hreystigreip en drengir í upphífingum og dýfum. Tveggja manna lið keppa í hraðaþraut.

Landsbankinn er bakhjarl Skólahreysti og frítt er inn á keppnina í Laugardalshöll í boði bankans.

Landsbankinn veitir nemendafélögum þriggja efstu skólanna vegleg peningaverðlaun.

Keppendur í þremur efstu sætum fá einnig sérstök verðlaun.

 

Nýjast