Gjaldskrár Norðurorku munu ekki hækka umfram 2,5% um næstu áramót eftir ákvörðun eigenda fyrirtækisins á aukaaðalfundi á þriðjudagsmorgun. Á þeim fundi var tillögum meirihluta stjórnar hafnað, en þær gerðu ráð fyrir á bilinu 2,5 og upp í 7% hækkun á gjaldskrá veitnanna um næstu áramót. Norðurorka rekur hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu og
fráveitu.
Á fundinum kom fram skýr afstaða eigenda, þar á meðal Akureyrarbæjar sem fer með rúmlega 98% eignarhlut, um að fylgja samkomulagi um hóflegar gjaldskrárhækkanir í þágu verðstöðugleika. Jafnframt var nýrri stjórn falið að endurskoða fjárfestinga- og fjárhagsáætlanir fyrirtækisins með hliðsjón af þeirri forsendu að gjaldskrár hækki að hámarki um 2,5%.
Hækkanirnar á gjaldskrá voru taldar nauðsynlegar til að tryggja afhendingaröryggi og rekstraröryggi veitukerfa sem og að mæta uppsafnaðri endurnýjunar- og fjárfestingarþörf. Þá þurfi veitan að standa undir auknum kröfur um áfallaþol, áhættustýringu og netöryggi auk þess sem fjármagna þarf umfangsmiklar framkvæmdir á næstu árum.
Dreifa má fjárfestingum yfir lengra tímabil
Hilda Jana Gísladóttir segir í bókun frá fundi stjórnar í liðinni viku að hún hefði talið að gjaldskrárhækkanir ættu ekki að fara yfir 2,5% í ljósi sameiginlegra aðgerða til að halda aftur af verðbólgu og stuðla að vaxtalækkunum.Hún lagði áherslu á að dreifa mætti fjárfestingum yfir lengratímabil án þess að skerða öryggi eða viðhald innviða.
Það helsta af fundinum er að breytingar á samþykktum Norðurorku hf. voru samþykktar og ný stjórn skipuð á grundvelli þeirra breytinga.
Í samþykktunum kemur nú fram að tveir af fimm stjórnarmönnum félagsins skuli vera óháðir aðilar en hingað til hefur stjórn félagsins verið skipuð fimm fulltrúum stjórnmálaflokka. Það má því segja að ný stjórn, sem skipuð var á aðalfundinum, sé söguleg því að hana skipa nú þrír fulltrúar stjórnmálaflokka og tveir óháðir sem tilnefndir voru af Akureyrarbæ. Sjá hér: Ný stjórn Norðurorku | Norðurorka
Á þessum auka aðalfundi var nýrri stjórn falið að taka fjárfestingar- og fjárhagsáætlun sem lögð var fyrir fundinn til frekari vinnslu með það viðmið að gjaldskrá hækki ekki meira en 2,5%.
Sjá nánar i Vikublaðinu n.k. fimmtudag.