Síðuskóli hafnaði í öðru sæti í Skólahreysti

Lið Síðuskóla á Akureyri.
Lið Síðuskóla á Akureyri.

Holta­skóli frá Reykja­nes­bæ er sig­ur­veg­ari í Skóla­hreysti 2016 en úrslitin fóru fram í Laugardalshöll í gærkvöld. Þetta er annað árið í röð sem skól­inn vinn­ur keppn­ina og í fimmta sinn á síðustu sex árum. Holta­skóli fékk 63,5 stig í keppn­inni og 250 þúsund krón­ur í verðlauna­fé frá Lands­bank­an­um. 

Í öðru sæti lenti Síðuskóli frá Ak­ur­eyri með 55 stig og því þriðja varð Stóru-Voga­skóli frá Vog­um með 49,5 stig.

Í hraðaþrautinni jafnaði Síðuskóli Íslandsmetið með því að fara þrautina á 2.05 mínútum. Það voru þau Embla Dögg Sævarsdóttir og Raguel Pino Alexandersson sem kepptu fyrir Síðuskóla.

 

Nýjast