Guðmundur G. Halldórsson, bóndi og hrognakaupmaður á Kvíslarhóli á Tjörnesi, var bæði sögumaður góður og snjall og hnyttinn hagyrðingur, samanber eftirfarandi sem undirritaður skráði eftir honum:
„Ég hlýddi eitt sinn á útvarpsviðtal við Jónas okkar Geir, kennara á Húsavík í áratugi, en Jónas fór á ólympíuleikana í Berlín 1936. Í spjallinu upplýsti Jónas að hann hefði setið skammt frá öllum helstu leiðtogum þriðja ríkisins og hefði því getað virt þá gaumgæfilega fyrir sér, þar sem þeir sátu í heiðursstúkunni að íhuga afrek aríska kynstofnsins.
Og þá datt mér í hug þessi vísa:
Lögðu á afrek arískt mat,
öðrum glæstri voru þeir.
Í heiðursstúku Hitler sat
og honum næstur - Jónas Geir.
JS