Segja illa vegið að framhaldsskólum á Norðurlandi

Menntaskólinn á Akureyri.
Menntaskólinn á Akureyri.

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar telur illa vegið að framhaldsskólum á Norðurlandi þar sem þeir bera verulega skertan hlut frá borði í fjárlögum 2021 sé miðað við aðra framhaldsskóla landsins og að þeir raði sér í neðstu sætin séu prósentuhækkanir milli ára skoðaðar. Þetta kemur fram í áskorun bæjarstjórnar sem samþykkt var samhljóða á bæjarstjórnarfundi í gær.

Þá harmar bæjarstjórn að nú virðist vanta 150 milljónir króna á árinu 2021 til þess að Háskólinn á Akureyri geti staðið straum að verulegri aukningu stúdenta undanfarin ár, en óásættanlegt er ef skólinn fer að vísa nemendum frá námi vegna fjármagnsskorts.

"Framhaldsskólarnir og Háskólinn á Akureyri gegna mikilvægu hlutverki í sveitarfélaginu sem og í landshlutanum. Skólarnir skipta máli fyrir menntun í heimabyggð, atvinnutækifæri, byggðaþróun og almenn lífsgæði í landshlutanum. Bæjarstjórn Akureyrarbæjar skora á ríkisstjórnina að standa ekki aðeins vörð um skólanna, heldur að skapa þeim svigrúm til þess að sækja fram," segir í áskorun bæjarins.


Athugasemdir

Nýjast