Sannkallaður sex stiga leikur á Akureyrarvelli í kvöld

Það verður sannkallaður sex stiga slagur á Akureyrarvelli í kvöld kl. 18.15, þegar KA fær HK í heimsókn í 1. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Bæði lið eru að berjast í neðri hluta deildarinnar en staða KA er þó öllu vænlegri, liðið er í þriðja neðsta sæti með 11 stig en HK situr sem fastast á botninum með aðeins 5 stig. "Leikurinn leggst alveg þokkalega í mig en þetta verður hörkuleikur, þar sem bæði lið þurfa á öllum þremur stigunum að halda," segir Haukur Heiðar Hauksson fyrirliði KA.  

Haukur segir að þetta sé týpískur sex stiga leikur, líkt og viðureignin gegn Leikni á Akureyrarvelli á dögunum þar sem gestirnir úr Reykjavík höfðu betur. KA gerði jafntefli gegn ÍR á útivelli í síðustu umferð og náði þar í dýrmætt stig í baráttunni. Haukur segir að KA-liðið sé ungt og því geti farið að vanta upp sjálfsstrautið þegar hlutirnir eru ekki að ganga. "Ég veit ekki alveg hvað hefur vantað uppá í sumar en við höfum þó ekki verið að nýta færin nógu vel. Hlutirnir hafa ekki verið að falla með okkur en svona er boltinn. Það er alveg kominn tími til að snúa hlutunum til betri vegar og vonandi gerist það í kvöld."

Nýjast