Þóroddur segir mikinn áhuga vera hjá fólki í bænum um aukið umferðaröryggi og fyrsta mál á dagskrá sé að leysa vandann með Bíladagana. „Svo er hugmyndin líka að fólk leggi fram ýmsa hluti sem skipta máli. T.d. það að í fjölskyldubænum Akureyri er fólk sem er með börn í hjólastól í vandræðum í göngugötunni í Hafnarstræti vegna trappa og blómakera. Það gengur ekki," segir Þóroddur. Hann segir hugmyndina vera að samtökin vinni með öðrum, t.d. lögreglunni og Bílaklúbbnum við að leysa þau vandamál sem upp koma. „Það sem er svo grundvallaratriði er að horfast í augu við vandann og viðurkenna það sem betur má fara," segir Þóroddur.