Samþykkir 10 milljóna króna aukafjárveitingu vegna fjárhagsaðstoðar

Félagsmálaráð Akureyrarbæjar hefur samþykkt fyrir sitt leyti beiðni Karólínu Gunnarsdóttur starfandi framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar um 10 milljóna króna aukningu á fjárveitingu á árinu vegna aukinna útgjalda í fjárhagsaðstoð, og vísað málinu til bæjarráðs.  

Félagsmálaráð hefur ennfremur samþykkt fyrir sitt leyti, beiðni Kristínar Sigursveinsdóttur framkvæmdastjóra búsetudeildar um breytingu á fjárhagsáætlun vegna þjónustusamnings um málefni fatlaðra, og vísað málinu til bæjarráðs. Annars vegar er um að ræða hækkun á tekjuáætlun og hins vegar vegna nýs verkefnis sem bættist við á árinu.

Nýjast