Samningar við PCC í höfn

Aðalsteinn Árni frá Framsýn, Jónas Kristjáns frá Þingiðn, Tomasz Mayewski og Ingimar Knútsson trúnað…
Aðalsteinn Árni frá Framsýn, Jónas Kristjáns frá Þingiðn, Tomasz Mayewski og Ingimar Knútsson trúnaðarmenn starfsmanna; Gestur Pétursson forstjóri og Marella Steinsdóttir mannauðsstjóri PCC sem skrifuðu undir samninginn.

Síðdegis í gær náðist samkomulag milli PCC BakkiSilicon og Framsýnar/Þingiðnar um kjarasamning fyrir hönd  starfsmanna fyrirtækisins til næstu fjögurra ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stéttarfélaginu.

Þar kemur fram að um 150 starfsmenn séu á launaskrá hjá PCC sem sé eitt mikilvægasta fyrirtækið á félagssvæði Framsýnar og Þingiðnar hvað launakjör félagsmanna varðar. Samningurinn felur í sér sambærilegar launahækkanir og samið var um á almenna vinnumarkaðinum fyrr á árinu.

Samningurinn gildi frá 1. febrúar 2024 til 1. febrúar 2028 og felur í sér nánara samkomulag um framkvæmd þeirra samninga fyrir félagsfólk Framsýnar og Þingiðnar sem starfar hjá PCC BakkiSilicon hf.

Hópur starfsmanna var viðstaddur undirskriftina. „Ekki var annað að heyra en að þeir væru mjög ánægðir með samninginn,“ segir í tilkynningunni.

Það voru þau Aðalsteinn Árni frá Framsýn, Jónas Kristjáns frá Þingiðn, Tomasz Mayewski og Ingimar Knútsson trúnaðarmenn starfsmanna; Gestur Pétursson forstjóri og Marella Steinsdóttir mannauðsstjóri PCC sem skrifuðu undir samninginn.

Nýjast