Samkaup skreytir tugi verslana sinna með regnbogum

Samkaup er styrktaraðili hinsegin daganna, Reykjavík Pride, sem hefjast í dag og standa til 7. ágúst. Fyrirtækið styrkir hátíðina beint auk þess að halda off venue viðburð í Krambúðinni Laugarlæk og skreyta verslanir sínar með regnbogum, en fyrirtækið rekur yfir 50 verslanir undir vörumerkjum Krambúðarinnar, Kjörbúðarinnar, Nettó og Iceland.

Gunnar Egill

Samtarf Samkaupa við Samtökin 78 á sér forsögu en fyrirtækið setti af stað síðasta haust átakið „Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið“ með það að markmiði að varpa ljósi á hvar fordómarnir geta legið og skapa fordómalaust umhverfi innan Samkaupa, fyrir alla sem að vinnustaðnum standa. Átakið fól meðal annars í sér samstarf við Samtökin 78, Þroskahjálp og Mirru, rannsókna- og fræðslusetur fyrir erlent starfsfólk, um fræðslu fyrir starfsfólk fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir viðleitni sína til að auka fjölbreytni.

„Við höfum lagt mikla áherslu á að vera fjölbreyttur vinnustaður og erum m.a. í samstarfi við Samtökin 78 um fræðlsu auk þess sem starfsmenn okkar geta nýtt sér ráðgjöf samtakanna sér að kostnaðarlausu. Nú þegar hatursorðræða virðist því miður aftur vera farin að láta á sér kræla finnst mér afar mikilvægt að fyrirtæki og vinnustaðir taki skýra afstöðu með hinsegin samfélaginu eins og öðrum minnihlutahópum, ekki aðeins á tyllidögum, eins og á Hinsegin dögum, heldur alla daga. Við hökkum til að skemmta okkur í Gleðigöngunni og alla vikuna,“ segir Gunnar Egill, forstjóri Samkaupa.


Athugasemdir

Nýjast