Á árinu 2009 nýttu um eitt hundrað starfsmenn sér sérstakan íþróttastyrk Samherja og hefur þeim sem nýta sér þennan styrk farið stöðugt fjölgandi frá því byrjað var á þessum styrkveitingum fyrir sex árum. Samstarf Samherja og Heilsuverndar er hluti af þessari stefnu en það samstarf hefur gengið vel og heldur vel utan um heilsufar starfsmanna auk þess sem Heilsuvernd gefur reglulega út pistla um bætta heilsu sem dreift er á starfstöðvum félagsins. Annar angi þess að stuðla að bættri heilsu starfsmanna er að sérstöku heilsuátaki hefur verið hrint af stað á skipum Samherja. Átakið felst m.a. í því að breyta mataræðinu um borð og stuðla að aukinni hreyfingu bæði um borð og í frítíma sjómanna. Með því vonumst fyrirtækið til að álagstengdum slysum fækki og almennt heilbrigði aukist. Þetta verkefni hefur nú verið í gangi hjá Samherja í þrjú ár. "Við erum að ná sýnilegum árangri sem við erum ánægð með. Við stefnum á nýju ári að því að gera enn betur og að meirihluti starfsmanna nýti sér íþróttastyrkinn sem í boði er og fari í kjölfarið að stunda reglulega hreyfingu," segir í tilkynningu frá Samherja.
Eftirtaldir starfsmenn hljóta hvatningarverðlaun Samherja fyrir árið 2009:
Gunnlaugur Valgeirsson skipaþjónusta
Teitur Arnlaugsson Fiskeldi
Gunnþór Guðmundsson Fiskeldi
Jóhann Pálsson Oddeyrin EA-210
Jóhann Valur Ólafsson Vilhelm Þorsteinsson EA-11
Brynjar Sigurðsson Margrét EA-710
Heimir Kristinsson Snæfell EA-310
Þórhallur Jóhannsson Björgvin EA-311
Gunnlaugur Hólm Sigurðsson Björgúlfur EA-312
Einar Guðmundsson Þorvarður Lárusson SH-129
Eiður Arnar Sigurðsson Dalvík
Teresita Abellar Perez Dalvík
Elizabeth Remedio Rico Dalvík
Zbigniew Mozejko hausaþurrkun