Samherji greiðir 300 starfs- mönnum í landi launauppbót

Samherji hefur ákveðið að greiða 300 starfsmönnum sínum í landi 100 þúsund króna launauppbót, miðað við fullt starf. Uppbótin verður greidd með launum núna um mánaðamótin og bætist við umsamda desemberuppbót sem greidd er á sama tíma. Miðað við mjög krefjandi rekstrarumhverfi hefur rekstur Samherja gengið vel á árinu.  

Starfsfólk félagsins hefur lagt sig fram í störfum sínum og um að þjónusta kröfuharða viðskiptavini félagsins eftir bestu getu, segir í frétt á vef félagsins.  Fyrir það vill Samherji þakka með þessari launauppbót núna í aðdraganda jólanna. "Þetta er í annað skiptið á árinu sem Samherji greiðir starfsfólki sínu launauppbót umfram kjarasamninga, en það var einnig gert síðastliðið vor. Nú fer í hönd einn útgjaldamesti mánuður ársins hjá flestum fjölskyldum og þess vegna ákváðum við nú að umbuna starfsfólki okkar fyrir frábært starf á árinu," segir Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja á vef félagsins.

Nýjast