Samherji birtir vefþáttinn Skýrslan sem aldrei var gerð

Skýrslan sem aldrei var gerð er heiti á þætti sem Samherji hefur birt á miðlinum Youtube.
Skýrslan sem aldrei var gerð er heiti á þætti sem Samherji hefur birt á miðlinum Youtube.

Skýrslan sem aldrei var gerð er heiti á þætti sem Samherji hefur birt á miðlinum Youtube. Heitið vísar í skýrslu Verðlagsstofu skiptaverðs frá árinu 2010. Skýrslan var þungamiðjan í umfjöllun Ríkisútvarpsins um meint brot Samherja, um að félagið hafi selt dótturfélagi sínu afla á undirverði. Það hafi svo orðið kveikjan að umfangsmikilli húsleit í höfuðstöðvum félagsins árið 2012.

Samherji segir Verðlagsstofuna hins vegar hafa staðfest með skriflegu svari í apríl á þessu ári að umrædd skýrsla hafi aldrei verið gerð. Það sé því niðurstaða útgerðarfélagsins að Helgi Seljan, fréttamaður Ríkisútvarpsins, hafi falsað umrædd gögn.

Því til staðfestingar birtir Samherji í þætti sínum hljóðbrot af fundi Jóns Óttars Ólafssonar, fyrrverandi rannsóknarlögreglumanns, og Helga þar sem heyra má fréttamanninn segjast hafa átt í erfiðleikum með að sannreyna umrædda skýrslu. Helgi segist þó hafa staðið í þeirri trú að skýrslan væri „legit“ - hún væri góð og gild.

„Tölurnar sem Helgi Seljan þurfti að „tékka af“ eru rangar enda tók hann heldur ekki tillit til ólíkra söluskilmála, stærðar gullkarfans eða sölutíma. Helgi Seljan byggði því heilan þátt á röngum upplýsingum,“ segir í myndbandi Samherja.

Í þættinum er meðal annars rétt við fyrrnefndan Jón Óttar og Jóhannes Pálsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri framleiðslu og markaðsmála Síldarvinnslunnar, sem segist hafa varað Helga Seljan við því að fullyrðingar hans um afurðasöluna væru að líkindum ekki á rökum reistar.

Að sama skapi segir Garðar Gíslason hæstaréttarlögmaður í þættinum að húsleit Seðlabankans, sem sagt er að ráðist hafi verið í út af þessari afurðasölu, hafi verið „illa undirbúin“ og hálfgerð „veiðiferð stjórnvalds.“ Það hafi á endanum verið mat sérstaks saksóknara sem hafði þessi mál til skoðunar að Samherji hafi staðið skil á gjaldeyristekjum „af kostgæfni.“ Þetta kemur fram á vefnum visir.is.

Fleiri þættir  frá Samherja eru væntanlegir síðar.


Athugasemdir

Nýjast