Á kjörskrá í Arnarneshreppi voru 126, þar af kusu 100, sem er 79,4% kjörsókn. Á kjörskrá í Hörgárbyggð voru 309, þar af kusu 162, sem er 52,4%. Í Arnarneshreppi greiddu 57 atkvæði (57%) með sameiningunni og 40 greiddu (40%) atkvæði gegn henni. Þrír seðlar voru auðir. Í Hörgárbyggð greiddu 149 atkvæði (92%) með sameinignunni og 12 greiddu (7%) atkvæði gegn henni. Einn seðill var auður.