Sameining Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar hefur tekið gildi

Sameining Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar tók formlega gildi sl. laugardag, þann 12. júní. Arnarneshreppur varð til árið 1824, en náði þá yfir nokkru stærra svæði en seinna varð. Það heiti leysti af hólmi sveitarfélagsheitið Hvammshreppur, sem náði nokkurn veginn yfir það svæði sem Arnarneshreppur náði yfir síðustu áratugina.  

Hörgárbyggð varð til 1. janúar 2001 með sameiningu Glæsibæjarhrepps, Skriðuhrepps og Öxnadalshrepps. Sameinað sveitarfélag Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar er 894 km2 að stærð. Þar bjuggu alls 606 manns þann 1. desember 2009. Í því eru tvö þéttbýli, Hjalteyri með 44 íbúa og Lónsbakki með 92 íbúa. Fyrsti fundur sveitarstjórnar hins sameinaða sveitarfélags er fyrirhugaður föstudaginn 18. júní nk. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins.

Þar kemur einnig fram að sl. föstudag, 11. júní, hélt leikskólinn Álfasteinn upp á 15 ára afmæli sitt með pompi og prakt. Hátíðin var jafnframt árleg vorhátíð leikskólans. Á dagskránni var myndlistarsýning, söngur barnanna, galdramaðurinn Einar einstaki, hoppukastali, leikir o.fl. Síðan voru pylsur grillaðar og boðið upp á köku. Hátíðin var mjög vel sótt, áætlað er að þar hafi verið um 100 manns.

Nýjast