Akureyri hefur séð um málefni fatlaða frá árinu 1997. Á þjónustusvæðinu verður Akureyrarbær leiðandi sveitarfélag sem veitir fötluðum á svæðinu öllu þjónustu á jafnréttisgrundvelli og verða ákvarðanir um veitingu hennar byggðar á mati á þjónustuþörf. Sveitarfélögin fimm bera sameiginlega ábyrgð á fjármögnun þjónustu innan svæðisins og greiða tekjuauka vegna þjónustu við fatlaða, þ.e. um 0,25% af útsvarsstofni til Akureyrarbæjar. Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlaða renna til Akureyrarbæjar sem og tekjur af rekstri einstakra þjónustueininga. Stjórn og framkvæmd samningsins er í höndum Akureyrarbæjar.
Það voru þau Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri Grýtubakkahrepps, Jón Hrói Finnsson sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps, Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri, Guðmundur Sigvaldson sveitarstjóri Hörgársveitar og Jónas Vigfússon sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, sem undirrituðu samninginn.