29. október, 2010 - 15:24
Fréttir
Sala á vetrarkortum á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er hafin í miðasölu Menningarhússins Hofs á Akureyri.
Sérstök tilboðsverð bjóðast á vetrarkortum í miðasölu Hofs fram að opnun skíðasvæðisins; 22.000 kr. fyrir fullorðna
og 8.000 kr. fyrir börn. Snjóframleiðsla hófst í Hlíðarfjalli í síðustu viku og vonir standa til að hægt verði að opna
skíðasvæðið um miðjan nóvember ef þokkalegur kuldi helst í Eyjafirði.
Aðrar nýjungar í Hlíðarfjalli þennan vetur eru að reist hefur verið sérstakt nestishús sem tekur 50-60 manns í sæti og einnig
verður tekin í notkun ný byrjendalyfta í Hólabraut. Það verður til þess að létta á biðröðum sem oft og
tíðum hafa myndast við Hólabrautarlyftuna. Þá hefur skíðaleigan einnig verið stækkuð til að anna síaukinni eftirspurn eftir
leigubúnaði.