SAk: Valkvæðum aðgerðum fækkað tímabundið vegna manneklu

Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Mynd: SAk/Facebook.
Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Mynd: SAk/Facebook.

Vegna veikinda starfsfólks og skorts á heilbrigðisstarfsmönnum þarf að grípa til tímabundinnar skerðingar á starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri og verður valkvæðum skurðaðgerðum fækkað tímabundið m.a. til þess að létta á álagi á gjörgæsludeild. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hildigunni Svavarsdóttur, forstjóra Sak.

„Það er von okkar að þessi aðgerð hafi ekki langvarandi áhrif en búast má við því að biðlistar lengist lítillega og eru þeir skjólstæðingar sem þetta snertir beðnir um að sýna því skilning,“ segir Hildigunnur í tilkynningunni.

Þar segir að ástæðuna megi  m.a. rekja til óvenju mikilla veikinda starfsfólks síðustu vikur ásamt því að ekki hefur tekist að manna sem skyldi.  „Þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar eftir heilbrigðisstarfsfólki gengur okkur illa að manna bæði fastar stöður og eins stöður til afleysinga og ljóst að skortur á heilbrigðisstarfsfólki hefur víðtæk áhrif,“ segir Hildigunnur og getur þess að mikið hafi verið um innlagnir sjúklinga vegna hinna ýmsu öndunarfærasjúkdóma sem hafa verið í samfélaginu.

Greinir Hildigunnur frá því að veikindi starfsfólks og aukinn fjöldi innlagna hafi áhrif á starfsemina á öllum deildum sjúkrahússins og þakkar um leið starfsfólki SAk „sem með þrautseigju og dugnaði hefur tekist að halda starfseminni gangandi og sinna þeim sjúklingum sem þurfa á okkar þjónustu að halda þrátt fyrir aukið álag.“

Hildigunnur líkur tilkynningunni á að hvetja fólk til þess að koma og starfa á Sjúkrahúsinu á Akureyri. „Með samstilltu átaki allra, heilbrigðiskerfisins sem og stofnana, þá tekst okkur að vinna með þessa stóru áskorun að manna nægilega vel í heilbrigðiskerfinu,“ segir hún.


Athugasemdir

Nýjast