SAk komið út úr kófinu að mestu

Starfsemistölur fyrstu fimm mánuði ársins hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) sýna að sjúkrahúsið er að mestu komin út úr þeim áhrifum sem COVID-19 faraldurinn hafði á hefðbundna starfsemi sjúkrahússins. Þetta kemur fram á vef sjúkrahússins.

Miðað við sama tímabil á síðasta ári fjölgaði komum á dag- og göngudeildir um ríflega 23%. Komur á bráðamóttöku eru um 18% fleiri og sjúkraflugum hefur fjölgað um 8%. Skurðaðgerðir voru 400 fleiri eða um 33%. Fæðingum hefur fjölgað um 39 milli ára og voru 185 fyrstu fimm mánuði ársins. Þá fjölgaði legudögum um 18% og rannsóknum á bilinu 10-35%.


Athugasemdir

Nýjast