Sæmd gullmerki Einingar-Iðju

F.v. á mynd; Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju, Birna Harðardóttir, Steinþór Berg og Anna Jú…
F.v. á mynd; Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju, Birna Harðardóttir, Steinþór Berg og Anna Júlíusdóttir varafomaður Einingar-Iðju.

Á aðalfundi Einingar-Iðju sem fram fór í nýverið voru tveir félagar sæmdir gullmerki félagsins. Þetta voru þau Birna Harðardóttir og Steinþór Berg Lúthersson. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, sagði við það tilefni að þau sem hlutu viðurkenningu hafi unnið sitt starf af trúmennsku og óeigingirni.

„Það er gaman fyrir félagið að geta sýnt því fólki sem starfað hefur lengi fyrir félagið og ekki síst sína samstarfsfélaga smá þakklætisvott fyrir hið mikla starf sem þau hafa innt af hendi,” sagði Björn. 

Um Birnu sagði Björn Snæbjörnsson að hún hafi verið í stjórn Matvæla- og Þjónustudeildar frá stofnun deildarinnar. „Birna hefur lengi verið trúnaðarmaður á sínum vinnustað, setið í samninganefnd félagsins og verið mjög virkur félagsmaður og tekið þátt í mörgum fundum sem fulltrúi okkar og setið ýmsum stjórnum og ráðum innan félagsins. Hún hefur verið öflugur talsmaður sinna félaga og félagsins í heild.“  

Um Steinþór sagði Björn að hann hefði verið í stjórn Matvæla- og Þjónustudeildar um langt skeið, „setið í samninganefnd félagsins ásamt því að vera í trúnaðarráði og einnig verið trúnaðarmaður á sínum vinnustað og verið mjög virkur félagsmaður og tekið þátt í mörgum fundum sem fulltrúi okkar og setið ýmsum stjórnum og ráðum innan félagsins. Hann hefur verið öflugur talsmaður sinna félaga og félagsins í heild.“  


Athugasemdir

Nýjast