SÁÁ hættir starfsemi á Akureyri

Framkvæmdastjórn SÁÁ samþykkti á fundi sínum í gær að hefja undirbúning að lokun göngudeildar SÁÁ á Akureyri. Samtökin starfa nú eftir 100 milljóna króna niðurskurðaráætlun og er lokun göngudeildarinnar á Akureyri hluti þeirrar áætlunar.

SÁÁ hóf rekstur göngudeildar á Akureyri í byrjun árs 1993 og hefur deildin sinnt ráðgjöf og greiningu fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga á öllu Norðurlandi síðan. Flestir þjónustuþegar koma til að fá eftirfylgd að lokinni dvöl á sjúkrahúsinu Vogi eða eftirmeðferðarstöðinni Vík en einnig hafa aðstandendur sótt margvíslega þjónustu á göngudeildinni, sem og fólk með spilafíkn.

Árið 2017 voru 350 ráðgjafaviðtöl skráð á göngudeild Akureyrar og yfir 1200 komur í úrræði, fyrirlestra og grúppur. Engin framlög hafa komið frá ríkinu til fjölbreyttrar göngudeildarstarfsemi SÁÁ undanfarin 3 ár.

 

Nýjast