SA Víkingar hirtu stigin þrjú í Egilshöllinni í kvöld
30. nóvember, 2010 - 21:04 Fréttir
SA Víkingar náðu að minnka forskot SR á Íslandsmóti karla í íshokkí niður í eitt stig með sigri gegn
Birninum, 8:3, í Egilshöllinni í kvöld. Mörk Bjarnarins í leiknum skoruðu þeir Brynjar Bergmann, Steindór Ingason og Andri Hauksson. Fyrir SA
Víkinga skoraði Björn Már Jakobsson og Andri Sverrisson í tvígang og þeir Orri Blöndal, Rúnar Freyr Rúnarsson,
Ingólfur Elíasson og Jón B. Gíslason eitt mark hver.Með sigrinum eru Víkingar komnir með 18 stig en SR trónir á toppnum með 19 stig. Björninn er sem fyrr í þriðja sæti með 11 stig
en SA Jötnar hafa sex stig á botninum, en liðið tapaði 5:11 gegn SR á útivelli sl. laugardag.
Starfsfólk Norðurorku tók þátt í Treyjudeginum í dag og mætti í sínum uppáhalds íþróttatreyjum til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Uppselt er á Vatnslitahátíð Íslands 2026 sem hefst á Akureyri í næstu viku. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins vegna viðburðarins, bæði innanlands frá og utan. Hátíðin hefst með opnun sýningar á um 90 vatnslitaverkum frá 21 þjóðlandi í Listasafninu á Akureyri fimmtudaginn 10. september.
Í tilefni af Gulum september tekur fjölbreyttur hópur samtaka á Akureyri höndum saman og býður til notalegrar samverustundar á Birkivelli í Kjarnaskógi laugardaginn 5. september klukkan 14.00.
Skipulögð brotastarfsemi hefur á undanförnum árum orðið umfangsmeiri og aðferðir brotahópa þróaðri og fjölbreyttari. Það kallar á öflug og samstillt viðbrögð þvert á ýmsa aðila m.a. stjórnvalda, löggæslu og atvinnulífsins. Mikilvægt er að löggjöf, rannsóknarheimildir og viðbúnaður þeirra sem fara með rannsókn og saksókn brota sæti framþróun í takt við breyttan veruleika
„Það liggur fyrir að við höfum glímt við ákveðinn húsnæðisvanda á Hlíð um langt skeið og hefur hann haft áhrif á okkar starfsemi. Það kom upp mygla í húsnæðinu og við þurftum að loka rýmum og því fylgdu mikil óþægindi fyrir okkar skjólstæðinga,“ segir Teitur Guðmundsson forstjóri Heilsuverndar og samstæðu.