SA Víkingar hirtu stigin þrjú í Egilshöllinni í kvöld
30. nóvember, 2010 - 21:04
SA Víkingar náðu að minnka forskot SR á Íslandsmóti karla í íshokkí niður í eitt stig með sigri gegn
Birninum, 8:3, í Egilshöllinni í kvöld. Mörk Bjarnarins í leiknum skoruðu þeir Brynjar Bergmann, Steindór Ingason og Andri Hauksson. Fyrir SA
Víkinga skoraði Björn Már Jakobsson og Andri Sverrisson í tvígang og þeir Orri Blöndal, Rúnar Freyr Rúnarsson,
Ingólfur Elíasson og Jón B. Gíslason eitt mark hver.Með sigrinum eru Víkingar komnir með 18 stig en SR trónir á toppnum með 19 stig. Björninn er sem fyrr í þriðja sæti með 11 stig
en SA Jötnar hafa sex stig á botninum, en liðið tapaði 5:11 gegn SR á útivelli sl. laugardag.
Það styttist óðum í að Akureyri fyllist af lífi, gleði og góðri stemningu þegar fjölskylduhátíðin Ein með Öllu hefst. Næstu dagar fara í að leggja lokahönd á undirbúninginn og brátt verður allt tilbúið til að taka á móti þúsundum gesta og heimafólki um verslunarmannahelgina á Akureyrarvelli, í miðbænum og í Kjarnaskógi.
Háskólinn á Akureyri gegnir lykilhlutverki við skipulagningu ráðstefnu sem ætlað er að vera stefnumótandi vettvangur verndunar líffræðilegrar fjölbreytni á norðurslóðum. Ráðstefnan ber heitið Arctic Biodiversity Summit og verður í Nuuk á Grænlandi í mars á næsta ári.
Vatnslitahátíð Íslands (Aurora Watercolour Festival) verður haldin 10.-15. september nk. á Akureyri. Efnt verður til ýmissa viðburða en þungamiðja hátíðarinnar er opnun sýningar 72 listamanna frá 21 þjóðlandi í Listasafninu á Akureyri sem stendur til 27. september. Þeir listamenn sem eiga verk á sýningunni koma m.a. frá Spáni, Póllandi, Perú, Svíþjóð, Mexíkó, Kasakstan og að sjálfsögðu frá Íslandi.
Glerárkirkja fagnar því að Arnhildur Valgarðsdóttir hafi verið ráðin til starfa sem tónlistarstjóri, organisti og kórstjóri kirkjunnar. Arnhildur hefur störf 1. október næstkomandi.
Við setningu á Mærudögum í gærkvöldi heiðraði forseti Íslands Halla Tómasdóttir, fyrir hönd Norðurþings, Frímann Sveinsson en hann var útnefndur bæjarlistamaður sveitarfélagsins.
Bjarni Þór Ævarsson, er ungur Akureyringur, matreiðslumeistari og stofnandi AllergyID — stafræns ofnæmiskorts sem hjálpar fólki með fæðuofnæmi að miðla ofnæmi sínu yfir tungumálahindranir en oft og tíðum getur verið snúið að koma til skila sé fæðuofnæmi að angra fólk.
21-28 til spanar til að leiða
Endurminning - Lokatónleikar 40 ára afmælishátíðar Sumartónleika í Akureyrarkirkju Andrew J. Yang leikur úrval píanóverka og frumflytur nýtt verk úr eigin smiðju.