Skautafélag Akureyrar og Björninn leiða saman hesta sína í dag þegar liðin eigast við í Skautahöll Akureyrar í meistaraflokki karla á Íslandsmótinu í íshokkí.
SA þarf nauðsynlega á sigri að halda til þess að halda í við SR sem hefur 9 stiga forystu á toppi deildarinnar.
Leikurinn í dag hefst kl. 17:30.