Róttækar breytingar í húsnæðismálum Heilsugæslunnar

Núverandi húsnæði Heilsugæslunnar á Akureyri þykir ekki boðlegt. Mynd/Þröstur Ernir
Núverandi húsnæði Heilsugæslunnar á Akureyri þykir ekki boðlegt. Mynd/Þröstur Ernir

Í skoðun er að byggja nýtt húsnæði fyrir Heilsugæsluna á Akureyri á tveimur stöðum þannig að íbúar geti geti sótt alla þjónustu í sitt nærumhverfi. Starfsemin verður öll sambærileg á hvorum stað fyrir sig með áherslu á að þjónustan verði öll á einni hæð. Þetta kemur fram í skýrslu um framtíðarhúsnæði Heilsugæslunnar á Akureyri og kynnt var á ársfundi HSN nýverið.

„Tvær heilsugæslustöðvar af þessari stærðargráðu mundu þjóna vel þeim fjölda íbúa sem er til staðar innan þjónustusvæðisins í dag, þó svo að hvor stöð gerði ekki ráð fyrir nema 8 læknum, sem er í samræmi við 1500 einstaklinga í samlagi. Reiknað er með tveimur læknastofum í viðbót á hvorri stöð fyrir lækna í sérnámsstöðum fyrir heimilislækningar og kandidata. Með þessu fyrirkomulagi munu þessar tvær stöðvar ráða við þá íbúafjölgun sem spáð er til ársins 2030. Jafnframt verð­ ur þjónustan persónulegri og nær íbú­ unum,“ segir í skýrslunni.

Ákvörðun um staðsetningu þessara heilsugæslustöðva þarf að taka með hliðsjón af núverandi dreifingu byggð­ ar og væntanlegri þróun til næstu ára, þannig að íbúafjöldi skiptist sem jafnast niður á hvora heilsugæslustöð fyrir sig. Tryggja verður gott aðgengi fyrir umferð og bílastæði á báðum stöðum.

Segir góðan möguleika á stuðningi við verkefnið

Jón Helgi Björnsson forstjóri Heilbrigðisstofnun Norðurlands segir í skriflegu svari við fyrirspurn blaðsins að næsta skref sé að ræða við ráðuneytið og fjárveitingavaldið um fjárveitingu til verksins. Ekki er líklegt að verulegir peningar fáist á þessu ári. „En hins vegar liggur fyrir að fáir staðir eru í þörf fyrir nýjar heilsugæslustöðvar og því ættum við að eiga góð­ an möguleika á stuðning í þetta verkefni. Við munum reyna að vinna að því að innan árs liggi fyrir einhver sýn á það hvenær þetta geti orðið að veruleika,“ segir Jón.

Hvað staðsetningu varðar segir Jón að þær verði unnar með skipulagsyfirvöldum á Akureyri. „Við hyggjumst hefja samráð með þeim nú strax í vetur og höfum einungis lagt áherslu á að staðsetningar miðist við það sem hentar notendunum og að byggt sé húsnæði sem hentar undir þessa starfsemi,“ segir Jón Helgi Björnsson.

Óhentugt húsnæði og bílastæðin alltof fá

Núverandi húsnæði Heilsugæslunnar á Akureyrar er til húsa í miðbænum, nánar tiltekið í Amaro-húsinu við Hafnarstræti og er því verulega ábótavant samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar. „Lyftan er mjög ófullnægjandi og aðeins ein í húsinu, sérsmíðuð og svo þröng að nútíma hjólastólar komast ekki einu sinni inn í hana. Þröngir gangar gera húsnæðið óhentugt og flæði sjúklinga í gegnum móttökur í húsinu er erfitt að samhæfa. Ekki hægt að uppfylla að öllu leyti brunatæknileg skilyrði.

Þá er mjög takmarkaður fjöldi bílastæða við húsnæðið. Nokkur bílastæði eru fyrir ofan húsið í húsagötu og er þá gengið inn í Heilsugæsluna á 6. hæð og síðan eru örfá bílastæði í Hafnarstrætinu með mjög takmarkað­ an biðtíma fyrir hvern og einn,“ segir í skýrslunni.

Fjöldi stöðugilda á Heilsugæslu Akureyrar er í dag um 67.

Nýjast