08. janúar, 2008 - 09:01
Fréttir
Fundur Vinstri-grænna, haldinn á Bláu könnunni í gærkvöld, skorar á ríkisstjórnina að koma myndarlega til móts við
kröfur verkalýðshreyfingarinnar um aðgerðir til að bæta kjör tekjulægri hópa samfélagsins með hækkun skattleysismarka,
hækkun barnabóta og auknum stuðningi við fólk vegna stóraukins húsnæðiskostnaðar. Fundurinn minnir á það
vandræðaástand sem lág laun og mikið vinnuálag hefur skapað mönnum í uppeldis- og umönnunargreinum og á fleiri sviðum þar sem
launakjör eru óviðunandi.