Ríflega 660 umsóknir bárust um sumarstörf

Alls bárust 663 umsóknir um sumarstörf hjá Akureyrarbæ, sem auglýst voru á dögunum. Um er að ræða störf á sambýlum, í öldrunarþjónustu, íþróttamannvirkjum, skrifstofustörf og fleira.  

Heildarfjöldi umsókna liggur þó ekki fyrir enn þar sem bærinn á eftir að auglýsa nokkrar stöður til viðbótar, samkvæmt  upplýsingum frá Dagnýju Bolladóttur verkefnisstjóra auglýsinga- og fræðslumála hjá Starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar. Árið 2010 bárust 708 umsóknir um sumarstörf hjá Akureyrarbæ. Fjöldi starfa í boði í ár er mjög svipaður og í fyrra.

Nýjast