Þrír nemendur úr útskriftarhópnum fengu viðurkenningar fyrir námsárangur yfir 9 í meðaleinkunn, sem er til marks um hversu sterkir námsmenn sækja skólann en kröfur í náminu eru mjög miklar. Að kennslu í RES Orkuskóla koma 65 kennarar, sem eru bæði innlendir og erlendir prófessorar og fræðimenn. Skólinn hefur nána samvinnu við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri og veita háskólarnir tveir sameiginlega þá meistaraprófsgráðu sem nemendur fá. Dr. Björn Gunnarsson, forstöðumaður RES Orkuskóla, segir skólann stöðugt að festa sig í sessi og skapa sér nafn fyrir einstakt nám á heimsvísu. RES hefur samstarfssamninga við um 35 erlenda háskóla og í gegnum þau tengsl koma nemendur að skólanum. Líkt og á síðasta ári eru Pólverjar fjölmennastir í útskriftarhópnum en áhugi á skólanum fer greinilega vaxandi í háskólunum í Norður-Ameríku, sem skilað hefur fjölgun nemenda af því heimssvæði.
„Við njótum þess að allir þekktustu sérfræðingar hérlendis í orkumálum koma að kennslu eða eru leiðbeinendur með rannsóknarverkefnum. Erlendis er skólinn mjög vel þekktur hjá þeim sem eru að sinna orkumálum og ég tel okkur því hafa náð góðum árangri í að gera skólann eftirsóttan og þekktan á heimsvísu. Nafn okkar verður líka ennþá þekktara eftir því sem við útskrifum fleiri nemendur. Við höldum sambandi við útskriftarnema okkar frá í fyrra og það fólk er að miklum meirihluta farið áfram í doktorsnám eða störf inni í þekktum háskólum erlendis. Allt byggist þetta starf á mikilli innlendri þekkingu í orkufræðum og það sem uppá vantar hér innanlands sækjum við til hátt metinna fræðimanna erlendis. Námið er því í hæsta gæðaflokki," segir dr. Björn Gunnarsson.
RES Orkuskóli hefur úr sterkum umsækjendahópi að velja og mörg dæmi eru um að nemendur í doktorsnámi erlendis geri hlé á því til að bæta við sig meistaragráðu í orkufræðum frá RES. Björn segir nemendahópanna sífellt verða sterkari og það styrki allan námsgrunn skólans. Þrír af nemendum í útskriftarhópnum í dag fengu viðurkenningu fyrir námsárangur yfir 9 í meðaleinkunn, sem þykir hátt í námi þar sem gerðar eru jafn miklar kröfur og raun ber vitni.
Orkuvörður ehf. eiga og starfrækja RES Orkuskóla. Hluthafar í Orkuvörðum eru Þekkingavörður ehf., RARIK, KEA, Gift fjárfestingarfélag, Landsvirkjun, Norðurorka, Akureyrarbær og Landsbanki Íslands. Eins og áður segir eru Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri meðal nánustu samstarfsaðila skólans, að ótöldum tugum háskóla víða um heim.