Rekstrargjöld án afskrifta námu 188,7 millj. kr. en afskriftir námu 11,6 millj. kr. Sambærilegar tölur frá fyrra ári eru 172,5 og 10,1 millj. kr. Rekstrarniðurstaða án fjármagnsliða var jákvæð um 17,9 millj. kr. og rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum ársreikningi sveitarfélagsins var jákvæð um 34,3 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 514,6 millj. kr, þar af eru veltufjármunir 216,3 millj. kr. Skuldir sveitarfélagsins nema samkvæmt efnahagsreikningi 43,9 millj. kr. og þar af eru skammtímaskuldir 16,0 millj. kr. Veltufjárhlutfallið er 13,52 í árslok, en var 11,33 árið áður. Bókfært eigið fé nemur 470,7 millj. kr. í árslok sem er 91,5% af heildarfjármagni. Árið áður var þetta hlutfall 90,7%. Samkvæmt sjóðstreymisyfirliti nam veltufé frá rekstri 48,5 millj. kr. og handbært fé frá rekstri 47,7 millj. kr. Fjárfestingarhreyfingar voru neikvæðar um 16,1 millj. kr. (það þýðir að fjárfest var fyrir 16,1 millj. kr.) Fjármögnunarhreyfingar sem voru allar vegna afborgana langtímalána sem námu 5,6 millj. kr. Hækkun á handbæru fé nam á árinu 26,0 millj. kr. og nam handbært fé sveitarfélagsins í árslok 195,2 millj. kr. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins í hlutfalli við rekstrartekjur þess voru 58,0%. Annar rekstrarkostnaður var 28,4% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins voru 487 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 527 þús. kr. á hvern íbúa. Árið 2008 voru skatttekjurnar 485 þús. kr. á hvern íbúa. Þetta kemur fram á vef Svalbarðsstrandarhrepps.