Rakel Hönnudóttir frá Þór/KA verður í fremstu víglínu með íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu í dag gegn Noregi í Algarve Cup í Portúgal, í lokaleik sínum í B- riðli keppninnar. Íslenska liðið hefur tapað báðum sínum leikjum í keppninni til þessa, gegn Bandaríkjunum og Svíþjóð.
Rakel, sem leikið hefur í stöðu hægri bakvarðar í síðustu tveimur leikjum, verður ásamt Margréti Láru Viðarsdóttur í fremstu víglínu íslenska liðsins en byrjunarliðið er þannig skipað:
Markvörður: Þóra B. Helgadóttir.
Hægri bakvörður: Sif Atladóttir
Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir (fyrirliði) og Erna B. Sigurðardóttir
Tengiliðir: Sara Björk Gunnarsdóttir og Dóra María Lárusdóttir
Hægri kantur: Rakel Logadóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherjar: Margrét Lára Viðarsdóttir og Rakel HönnudóttirLeikur Íslands og Noregs hefst kl. 15:00 að íslenskum
tíma.