Ráðist á lögreglumann á Akureyri og nokkur fíkniefnamál komu upp

Lögreglan á Akureyri var kölluð að skemmtistað í bænum í nótt þar sem að maður hafði ráðist á dyraverði staðarins og m.a. skallað einn dyravörðinn í andlitið. Þegar lögreglan kom á staðinn var maðurinn töluvert æstur. Þegar verið var að hafa afskipti af manninum réðst hann á lögregluna og sparkaði hann m.a. í fætur og bak lögreglumanns. Lögreglumennirnir þurftu einnig að verjast ágangi vina mannsins þegar þeir voru að hafa afskipti af honum en töluverður mannfjöldi var inni á skemmtistaðnum. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöðina þar sem að hann var vistaður. Þetta er í annað sinn á réttri viku sem ráðist er á lögregluþjón að störfum á Akureyri. Við fíkniefnaeftirlit á Siglufirði í nótt handtók lögreglan þrjá menn vegna gruns um fíkniefnamisferli. Húsleitir voru framkvæmdar í kjölfarið og fann lögregla nokkurt magn fíkniefna. Einnig var leitað í bifreið í eigu mannanna. Við fíkniefnaeftirlitið notuðu lögreglumennirnir fíkniefnahund lögreglunnar á Akureyri. Mennirnir voru yfirheyrðir og sleppt að loknum yfirheyrslum. Lögreglan á Akureyri hafði í gærkvöld afskipti af ökumanni á Akureyri sem grunaður er að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Ökumaðurinn var fluttur á lögreglustöðina þar sem að sýni voru tekin úr honum vegna rannsóknar máls. Ökumanninum var sleppt að loknum yfirheyrslum. Lögreglumenn urðu svo varir við sama ökumann á ferðinni á bifreið seinna um nóttina. Þegar þeir gáfu ökumanninum stöðvunarmerki reyndi hann að stinga lögreglu af og ók á mikilli ferð stutta vegalengd en stöðvaði síðan og hljóp úr bifreiðinni. Lögreglumennirnir hlupu ökumanninn uppi og handtóku hann vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Seinni part föstudagsins 21. desember hljóp lögreglan á Akureyri einnig uppi ökumann sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ökumaðurinn var í annarlegu ástandi og var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöðina á Akureyri.

Nýjast