Prófkjör Samfylkingarinnar á Akureyri hafið

Alls gefa þréttan frambjóðendur kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar á Akureyri, sem hófst í morgun og stendur fram til kl. 17.00 á morgun laugardag. Prófkjörið er rafrænt og er opið öllum kosningabærum einstaklingum í sveitarfélaginu á kjördag í vor.  

Aðeins Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri gefur kost á sér í 1. sætið. Sigrún Stefánsdóttir bæjarfulltrúi og Logi Már Einarsson arkitekt gefa kost á sér í 2. sætið. Jón Hjaltason sagnfræðingur gefur kost á sér í 2.-3. sæti og Helena Þ. Karlsdóttir bæjarfulltrúi og Pétur Maack Þorsteinsson, forstöðusálfræðingur gefa kost á sér í 3. sæti.

Eftirfarandi einstaklingar hafa boðið sig fram í prófkjörinu:

Guðgeir Hallur Heimisson, bókari, sæti 3-5

Helena Þ. Karlsdóttir, lögfræðingur, sæti 3

Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri, sæti 1

Jóhann Jónsson, markaðsstjóri, sæti 4

Jón Hjaltason, sagnfræðingur, sæti 2-3

Jón Ingi Cæsarsson, dreifingarstjóri, sæti 3-5

Linda María Ásgeirsdóttir, ferðamálafulltrúi, sæti 3-5

Logi Már Einarsson, arkitekt, sæti 2

Pétur Maack Þorsteinsson, forstöðusálfræðingur, sæti 3

Ragnar Sverrisson, kaupmaður, sæti 4

Sigrún Stefánsdóttir, sölu- og þjónustufulltrúi, sæti 2

Valdís Anna Jónsdóttir, þjónustufulltrúi, sæti 3-5

Þorlákur Axel Jónsson, menntaskólakennari, sæti 3-5

Nýjast